Færsluflokkur: Bloggar
27.8.2007 | 16:21
Minning
Í dag vil ég minnast Stefaníu frænku minnar og vinkonu sem lést á spáni fyrir 4 árum síðan í dag.
Þeir sem hafa misst einhvern sem skiptir mann svo miklu máli vita að maður finnur að hjartað brotnar og maður veit að lífið verður aldrei samt aftur,hluti af mér dó með henni Stefaníu minni,og ég hélt ég myndi aldrei ná mér uppúr þunglyndinu,en tíminn gerir það að verkum að maður getur loksins farið að lifa með sorginni og minnst hennar með ást og kærleika,því ég veit að þegar minn tími er komin þá tekur hún á móti mér.
Hún var svo falleg bæði að innan og utan,og ég á svo góðar minningar og það finnst mér ómetanlegt.
Það var stofnuð kærleiksíða henni til heiðurs og endilega skoðið hana linkurinn á hana er www.kaerleikur.is.
Ég samdi texta og frændi minn samdi lagið við lag sem heitir Stefanía mín inná kærleiksíðunni hennar ég söng það, og við sömdum lagið og gáfum kærleiksjóðnum hennar það,ég hef sjaldan orðið stoltari af sjálfri mér heldur en þá.
Elsku fallega Stefanía mín hvíl þú í friði.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.8.2007 | 15:49
Skelfingarsaga.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.8.2007 | 19:37
Bjartsýnin borgar sig
Leit að Þjóðverjum enn árangurslaus | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.8.2007 | 21:30
Vonandi fær einhver að gjalda fyrir þetta.
Námuverkamenn í Utah að öllum líkindum látnir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.8.2007 | 18:14
Úr öllum áttum
Jæja þá er hún Dísa,celeb vinkona mín að fara til TEXAS í US OF A á morgun,gvöð hvað ég er eftir að sakna hennar mikið,hún er sko eftir að standa sig vel og skemmta sér ógó mikið ég er eftir að sakna þín mest heilladísin mín
Ég er mikið búin að vera að spá í þessum geitungum og ég er búin að komast að því að þeir leggja ekkert smá mikið á sig til að hrella mig,þeir eru allstaðar þar sem ég er,og þeir eru svo sniðugir þessi kvikindi að ég held að mannfólkið geri sér ekki grein fyrir því. Og ég veit að fólk er búið að fá nóg af þessu tali mínu,en ég verð að tjá mig um þessa hræðslu mína.
Það eru allir að tala um kaupþings tónleikana og hvað stuðmenn voru ekki góðir,og ég fylgdist nú með þessu í sjónvarpinu og ég verð að segja að mér fannst þeir nú ekkert hræðilegir,NR 1: fannst mér frábært að sjá hann Egil með þeim í liði á ný,NR 2: Þá fannst mér búningarnir ógeðslega hallærislega flottir,og NR 3: þá tóku þeir víst gamla slagara,þannig mér finnst við of fljót að dæma, þó mér fyndist sum lögin útí hött þá eru þetta Stuðmenn og þeir eru þekktir fyrir að vera svakalega spes,,,Mér finnst þetta líka lýsa okkur vanþakklátu Íslendingum að þegar við fáum einhvað frítt,þá heyrist hæst kvartið og kveinið í okkur Mér finnst bara að við mættum skammast okkar stundum.
Ég nennti ekki að vera í bænum og látunum á menningarnótt,þó ég efist ekki um að það hafi verið svakalega gaman,þannig ég skellti mér í sveitina til mömmu minnar og Gunnu frænku og ég skemmti mér konunglega,kom heim í gær svakaþreytt en alsæl.
Ég nenni ekki að hafa þetta lengra að sinni
CHAO
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.8.2007 | 18:34
dah HVERS KONAR SPURNING ER ÞETTA??
Auðvitað eiga leikskólakennarar að vera á hærri launum,og kennarar líka,þetta er fólkið sem hugsar og menntar börn framtíðarinnar á meðan foreldrarnir eru í vinnu
ohhhh nú er ég aftur orðin reiðég sem ætlaði að vera úper hamingjusöm
og hvað kemur laun leikskólakennara húsnæðismálum við,,,HALLÓ,,þetta ætti ekki að vera svona
Eiga laun leikskólakennara að vera hærri? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.8.2007 | 16:12
Oj Oj Oj
Maður er samt búin að spá í,hvenær þessi umræða um Barnaland myndi koma upp,það hlaut að koma að því að þessir ógeðslegu perrar fyndu leiðina að íslenskum vefsíðum,Ef við byggjum í fullkomnum heimi þá væri kannski hægt að útríma þessum perrum,sem eyðileggja líf lítilla,saklausra barna.
Ég verð svo svakalega reið þegar ég les svona fréttir ARRRRRRRRRG
Foreldrar fullir viðbjóðs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.8.2007 | 19:44
Geitungardagarnir miklu
Jæja ég hef ákveðið að prufa þetta blogg,líst svo vel á það,er búin að vera með blogg útum allt,en líst núna svo vel á þetta,eins og þeir segja allt er þegar þrennt.
Fólk er að tala um að geitungarnir séu ekki sjáanlegir þetta sumar,að það sé lítið af þeim og allir eru mjög hissa,nú ég var á þeirri skoðun líka fyrir stuttu,en viti menn,ég fagnaði of fljótt
Þeir(geitungarnir) hafa ákveðið að safnast saman allir á vinnustað mínum og þeir eru allir þar að hrella mig,Ég er semsagt á garginu allan daginn,og ég veit að sumir hugsa,,hvaða aumingjaskapur þetta sé,þeir gera ekki neitt en það er ekki æskilegt að segja þessi orð við manneskju sem er með fóbíu og er ekki að látast,mér virkilega líður illa útaf þessu,,,,,Þannig þeir sem segja þessi hrellandi 4 orð eru gjörsamlega ekki neitt að hjálpa,endilega frekar sleppiði að segja þau.
Í dag sumsagt eftir geitunga-gargið og móðursýkina,þá ákvað ég að fara með hundinn minn í göngutúr,en ég geri það áhverjum degi(ég á líka besta hund í heimi) þannig að dagurinn sé ekki allur ónýtureftir allan tilfinningarússíbanann,svo eyddi ég heilmiklum tíma eða liggur við restinni af deginum í að úthugsa fullkomna og bestu megrunaraðferðina,en það geri ég á hverjum degi en er ekki ennþá búin að finna hana,það kemur kannski,á meðan ætla ég að éta ís og nammi(mjög snbiðugt)En í bili ætla ég ekki að hafa þetta lengra,ætla að horfa á will og grace endursýninguna eins og einhver haugur og fara að sofa bráðlega,en bless í bili
ps:þetta er tíminn sem geitungarnir stinga víst að ástæðulausu(arrrrrrg)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)